flugfréttir
Hópur flugmanna hjá Norwegian í verkfalli í dag
Boeing 737-800 vél Norwegian Air Shuttle
Hátt í 70 flugmenn hjá Norwegian Air Shuttle hófu verkfallsaðgerðir í dag eftir að viðræður við stjórn félagsins fóru út um þúfur á miðnætti í gær.
Norwegian Air Shuttle sagði í yfirlýsingu sinni í dag að engar ferðir hafa verið felldar niður þar sem takmarkaður fjöldi flugmanna fór í verkfall og náði félagið að kalla til flugmenn úr dótturfélögum frá Finnlandi og Spáni til að hlaupa í skarðið.
Verkalýðsfélagið segir að Norwegian sé að brjóta lög með því að fá aðra flugmenn til starfa í verkfallsaðgerðum en félagið segir að það sé ekki að brjóta nein lög.
Flugmenn Norwegian Air Shuttle krefjast þess að fá sömu kjör og flugmenn hjá móðurfélaginu Norwegian Air í stað þess að starfa eftir kjarasamningi dótturfélaganna.
Ef samningar nást ekki eftir helgi gætu allt að 650 flugmenn félagsins einnig slegist með í hópinn í næstu verkfallsaðgerðum en starfsmannafélögin Parat og NHO Luftfart hafa átt í samningaviðræðum í þrjá
mánuði en án árangurs.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.