flugfréttir
Vilja að gerð verði úttekt á hávaða frá Chicago O´Hare flugvellinum
O´Hare-flugvöllurinn í Chicago
Nefnd, sem berst gegn hljóðmengun frá O´Hare-flugvellinum í Chicago, hefur gert samning við tvö ráðgjafarfyrirtæki, JDA Aviation Solutions í Washington og LGN Aviation í Minnesota, til að gera úttekt á hávaða frá vellinum.
Craig Johnson, talsmaður nefndarinnar Suburban O´Hare Commission (SOC), sem stofnuð var árið 1983, segir að baráttan fyrir ónæði frá O´Hare-flugvelli sé löngu töpuð en nú verði ráðist í að finna hvaða möguleikar íbúar hafi til að fá meira næði frá flugvélum í flugtaki og lendingu sem fljúga yfir íbúðarhverfum nálægt vellinum.
SOC vill að gerð verði ítarleg rannsókn á þeim áhrifum sem hávaði frá O´Hare-flugvöllurinn hefur á íbúa án
þess að það muni hafa neikvæð áhrif á starfsemi flugvallarins.
O´Hare-flugvöllurinn í Chicago er stærsti flugvöllur í heimi er kemur að flugtökum og lendingum en hann hampaði titlinum sem stærsti flugvöllur heims til ársins 1998.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.