flugfréttir
Munu taka ákvörðun á næstu vikum um hvort að leitinni að MH370 verði hætt
- Ekki hægt að leita að malasísku farþegaþotunni að eilífu
Næstkomandi sunnudag verður komið 1 ár frá því að flug MH370 hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking
Yfirvöld í Ástralíu eru þessa stundina að ræða um framhaldið í leitinni að malasísku farþegaþotunni og er verið að ákveða hvort að leitinni verði hætt eftir nokkrar vikur eður ei.
Warren Truss, aðstoðarforsetisráðherra Ástralíu, sagði að leitin gæti ekki haldið áfram að eilífu og standa viðræður yfir við
stjórnvöld í Kína og Malasíu hvort eigi að flauta til leiksloka en næstkomandi sunnudag verður 1 ár liðið frá því
vélin hvarf með dularfullum hætti á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking með 239 manns innanborðs.
"Það er greinilegt að við getum ekki leitað að vélinni endalaust þótt við viljum gera allt sem hægt er til að finna hana", segir Truss sem tekur það fram að ákvörðunin verði tekin á næstunni um það hvort að leitarsvæðið verði stækkað út fyrir "heita svæðið" sem leitað hefur verið á sl. mánuði.
Warren Truss, aðstoðarforsetisráðherra Ástralíu
Leitin að flugi MH370 er þegar orðin dýrasta leit sem gerð hefur verið að farþegaþotu og er kostnaðurinn við leitina
komin yfir 5 milljarða króna en Truss tók það fram að ógjörningur sé að halda leitinni áfram án aukinnar aðstoðar frá fleiri löndum.
"Við settum það fé í leitina sem við töldum að myndi duga og með háþróaðasta búnaði sem völ er á - Við þurfum að fara að taka ákvörðun um hversu lengi á að leita".
Martin Dolan, yfirmaður rannsóknarnefnd flugslysa í Ástralíu, sagði á sínum tíma að hann væri sannfærður um að vélina væri að finna á "heita svæðinu" en hann tekur fram að kostnaðurinn fer allt eftir því hversu víðar vélarinnar verður leitað.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.