flugfréttir

Emirates þarf allt að tvö hundruð A380 risaþotur í viðbót

- Tim Clark setur enn og aftur þrýsting á Airbus um að koma með A380neo

4. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 20:39

Airbus A380 risaþota Emirates í aðflugi að Heathrow-flugvellinum í London yfir Myrtle Avenue

Emirates hefur enn og aftur sett þrýsting á Airbus um að koma með sparneytnari útgáfu af A380 en Tim Clark, forstjóri félagsins, sagði í dag að Emirates hefði þörf á allt að 200 risaþotum til viðbótar.

Clark segir að Emirates þurfi fleiri risaþotur svo hægt sé að skipta út eldri risaþotum félagsins er þær fara að eldast á næstu árum með því skilyrði að þær vélar komi með sparneytnari hreyflum.

Airbus hefur gefið í skyn að til stendur að gera frekari betrumbætur á risaþotunni þótt ekki sé staðfest að ráðist verði í að uppfæra hönnun vélarinnar með nýrri kynslóð af hreyflum en framleiðslan á A380 er núna fyrst að borga sig upp og hefur þróun vélarinnar og framleiðslan kostað Airbus yfir 2 þúsund milljarða króna.

Clark segir að Emirates myndi þurfa að fá fyrstu Airbus A380neo vélina afhenta árið 2021 en ef vélin yrði framleidd yrði hún allt að 13% sparneytnari en þær A380 vélar sem eru í umferð í dag.

Emirates vinnur nú að því að endurbæta almennu farrýmin um borð í vélunum og skipta sætunum út fyrir nýjum sætum sem verða 30 prósent léttari í þeim tilgangi að spara eldsneyti.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga