flugfréttir

Einnota blautþurrkur frá Malaysia Airlines fundust á strönd í Ástralíu

10. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 14:41

Hjónin Kingsley og Vicki Miller fundu þetta í sandinum á strönd í Vestur-Ástralíu í júlí sl. sumar

Ekki er víst að hægt verði að tengja pakka með einnota blautþurrkum, sem rak upp á strönd í Vestur-Ástralíu, við malasísku farþegaþotuna sem leitað er að þrátt fyrir að umbúðirnar séu merktar Malaysia Airlines.

Það voru hjónin Kingsley og Vicki Miller sem fundu pakkann er þau voru á göngu á ströndinni þann 2. júlí í fyrra og voru klútarnir óuppteknir en flugliðar dreifa þeim til farþega þegar verið er að bera fram mat og drykki um borð í vélunum.

Talsmaður samhæfingarstöðvarinnar, þaðan sem leitinni að flugi MH370 er stjórnað, segir að blautþurrkur úr flugvélum séu of algengar og sé ekkert sem bendir til þess að þessi tiltekni blautþurrkupakki komi úr vélinni sem leitað er að.

Ekki er talið að hægt verði að tengja þurrkurnar beint við flug MH370

Pakkinn, sem er 6 sinnum 8 sentimetrar á stærð, fannst á Cervantes-ströndinni um 150 kílómetra norður af Perth en leitarsvæðið er í um 1.800 kílómetra fjarlægð suðvestur af stöndinni út í Suður-Indlandshafi.

Búið er að senda blautþurrkupakkann til rannsóknarnefndar flugslysa í Ástralíu í Canberra en séfræðingar hafa áður sagt að mögulegt brak úr vélinni gæti rekið með hafstraumum hundruði kílómetra leið á mörgum mánuðum og skolað á land bæði í Ástralíu og við Indónesíu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga