flugfréttir
Haffræðingar ósammála um hvert brak frá MH370 gæti hafa rekið
- Undrast að ekkert brak hafi enn skolað á land eftir heilt ár

Skipið Ocean Shield við leit í Suður-Indlandshafi
Haffræðingar eru nú óssamála um þau reiknilíkön sem gerð hafa verið til að finna út hvert brak úr malasísku farþegaþotunni gæti hafa rekið með öldunum frá þeim stað þar sem talið er að hún hafi farið í sjóinn í Suður-Indlandshafi.
Sú staðreynd að ekkert brak hefur fundist af flugi MH370 hefur gert vísindamönnum erfitt fyrir en upphafleg reiknilíkön sem gerð voru sýndu fram á að brak hefði átt að reka á land við strendur Súmötru í Indónesíu eftir 4 mánuði eða í júlí sl. sumar.
Erfiðasta áskorun haffræðinga hefur verið sú að vegna skorts á upplýsingum um hvarf MH370 þá hafa þeir engan stað til að miða við þar sem ekki er vitað hvar nákvæmlega vélin fór í sjóinn og því er erfitt að gera úteikninga á því hvar brakið byrjaði að fljóta með öldunum.
Brak hefði átt að skola á strendur Ástralíu sl. haust
Charitha Pattiaratchi, prófessor í haffræði við háskólann í Vestur-Ástralíu, er ósammála þeim útreikningum sem áströlsk yfirvöld létu gera og segir hann engar líkur á því að brak myndi berast með sjónum til Indónesíu.

Ljósmynd af skjá sem sýnir fljótandi hlut í Suður-Indlandshafi
sem reyndist ekki tilheyra flugi MH370
Háskólinn í Vestur-Ástralíu gerði allt aðra útreikninga en þeirra reiknilíkön sýna fram á að brak hefði skolað upp á strönd Ástralíu í september í fyrra en þar sem komið er ár frá því að vélin hvarf þá hafa haffræðingar undrað sig á því hvers vegna ekkert brak hefur sést.
Pattiaratchi segir að mögulegt sé að þeir tveir fellibyljir sem fóru yfir svæðið skömmu eftir að malasíska farþegaþotan hvarf gætu hafa átt sinn hlut að máli og sökkt brakinu sem annars hefði borist með straumnum til Ástralíu.
Önnur útskýringin sem kemur til greina er að vélin hafi ekki brotnað upp er hún lenti á yfirborði sjávar og sokkið í heilu lagi.
Samgönguöryggisnefnd Ástralíu mun á næstunni kynna endurbætt reiknilíkan en David Griffin, haffræðingur hjá nefndinni, segir að óreglulegir haffstraumur gætu hafa látið brakið berast í hringi með þeim afleiðingum að það hefur enn ekki skolað á land neinsstaðar.
David bendir á að ef brak finnst á sjó fljótlega eftir að flugvél hverfur að þá sé hægt að rekja til baka staðsetninguna með því að reikna út hafstrauma en erfiðlega getur verið að gera það þegar heilt ár er liðið.


6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.