flugfréttir

Áhafnir Germanwings óttast að viðgerð á nefhjóli hafi orsakað slysið

- Vélin sem fórst var kyrrsett í klukkustund daginn fyrir slysið vegna vandamáls

25. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 10:20

Germanwings hefur þurft að fella niður fleiri flugferðir í dag þar sem áhafnir treysta sér ekki til þess að fljúga

Germanwings hefur þurft að aflýsa fleiri flugferðum í dag en áhafnir hafa neitað að fljúga þar sem sagt er að þær treysti sér ekki til þess í kjölfar flugslyssins í Frönsku Ölpunum í gær.

Aðrar heimildir herma að flugmenn og flugliðar óttast að slysið megi rekja til viðgerðar á hlera fyrir nefhjólastell vélarinnar samkvæmt fréttum þýska dagblaðsins Der Spiegel en Lufthansa segir að það séu engin tengsl milli viðgerðarinnar og þess að áhafnir vilji ekki fljúga.

Vélin er sögð hafa verið kyrrsett í heila klukkustund vegna bilunar sem kom upp í hjólastelli daginn fyrir brottför frá Barcelona.

"Bilunin varðaði ekki öryggisatriði vélarinnar heldur var einungis verið að koma í veg fyrir hvín eða hávært hljóð sem myndaðist í hlerunum á flugi", segir talsmaður Lufthansa sem bendir á að vélin hafi flogið nokkrar flugferðir eftir viðgerðina án vandræða.

Lufthansa segir að áhafnir séu í miklu áfall eftir slysið sem átti sér stað í gær þar sem samstarfsfólk og vinir þeirra létu lífið og treysti sér því ekki til þess að fljúga en sagt er að hin raunverulega ástæða séu áhyggjur yfir því að viðgerðin á hleranum hafi orsakað slysið.

Vandaveltur hafa verið í gangi meðal sérfræðingar sem hafa komið með þá kenningu að hleri fyrir nefhjólið hafi opnast skyndilega á flugi, rifnað af, skollið utan í skrokk vélarinnar og gert gat á hann með þeim afleiðingum að loftþrýstingur gæti hafa fallið niður um borð í vélinni.

Lufthansa hefur tekið fram að jafnvel þótt að ekki hefði verið gert við vandamálið með hljóðið í hlerunum hefði vélin samt verið örugg.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga