flugfréttir
Myndir af hljóðritanum úr Germanwings-vélinni
Komið var með hljóðritann til Le Bourget-flugvallarins í morgun
Svona lítur annar svarti kassinn út sem var um borð í Germanwings-vélinni sem fórst í gær en eins og sjá má er hann illa farinn.
Hér er um að ræða hljóðritann en komið var með hann til Le Bourget-flugvallarins í París nú fyrir skömmu en yfirvöld tóku fram er hann fannst að hljóðritinn væri mikið skemmdur en þrátt fyrir það er talið að hægt verði að ná upplýsingum úr honum.
Hljóðritinn hefur að geyma upptöku frá fjórum hljóðnemum um borð í stjórnklefanum með samtali flugmannanna auk samskiptum við flugumferðarstjóra og einni tekur hann upp öll hljóð í klefanum.
Flugslysasérfræðingar eru þegar byrjaðir að vinnu úr gögnunum úr hljóðritanum en Alain Vidalies, samgönguráðherra Frakklands, segir að rannsóknin muni ganga hraðar fyrir sig því heillegri sem upptökurnar eru af því sem flugmönnunum fór á milli áður en vélin fórst.
"Því næst þarf að greina hljóðin betur og er það vinna sem gæti tekið nokkrar vikur en það gæti varpað ljósi á það hvað olli slysinu", segir Vidalies.
Enn hefur ekki tekist að finna flugritann sem hefur að geyma ítarlegar upplýsingar yfir fluglag vélarinnar sl. 25 klukkustundir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.