flugfréttir
Aðeins kassinn utan um flugritann fannst en ekki minnisbúnaðurinn
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Francois Hollande, Frakklandsforseti og Mariano Rajoy, forsetisráðherra Spánar, á blaðamannafundi sem lauk klukkan fjögur í dag
Tilkynnt var á þriðja tímanum í dag að tekist hefði að finna hinn svarta kassann sem er flugriti Germanwings-vélarinnar en nú hefur komið fram að aðeins var um að ræða boxið sjálft en ekki minnisbúnaðinn sjálfann sem geymir upplýsingarnar.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Francois Hollande, Frakklandsforseti, komu fram á blaðamannafundi sem lauk nú á fimmta tímanum þar sem Hollande sagði að aðeins hafi fundist boxið af flugritanum en ekki sjálfur minnisbúnaðurinn sem er týndur en hann inniheldur gögnin sem flugritinn tekur upp.
Hinn svarti kassinn, hljóðriti vélarinnar, fannst í gær og var greint frá því í dag að flogið var með hann til Le Bourget í París. Flugslysasérfræðingar, sem rannsaka gögnin úr hljóðritanum, segjast eiga von á því að fyrstu upplýsingar úr honum gætu legið fyrir innan örfárra klukkustunda.
Flugriti úr farþegaþotu
Flugslysasérfræðingar vonast til að upplýsingar úr báðum svörtu kössunum geti varpað ljósi á ástæðuna fyrir því hvers vegna flugmennirnir sendu ekki út neyðarkall.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.