flugfréttir
Drónar bannaðir í Dubai og Furstadæmunum
- Banna sölu og notkun á fjarstýrðum flýgildum
Dróna var flogið í veg fyrir aðflugið að Heathrow-flugvelli sl. sumar
Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa ákveðið að banna sölu á fjarstýrðum drónum til almennings vegna þeirrar hættu sem getur skapast af þeim gagnvart flugumferð og þá hefur notkun þeirra einnig verið bönnuð.
Efnahagsþróunardeild landsins í Abu Dhabi hefur ákveðið að banna sölu á drónum þar til búið verður að semja lög og reglur um notkun slíkra flýgilda sem hafa notið mikilla vinsælda meðal almennings víða um heim.
Ákvörðunin að banna sölu á drónum var tekin í kjölfar atviks er einu slíku flýgildi var flogið í veg fyrir aðflugið að Dubai-flugvellinum í janúar sl. en loka þurfti fyrir flugumferð um völlinn í um klukkustund í kjölfar og var flugvélum beint annað.
"Drónar eru bannað í lofthelginni yfir Dubai ekki nema að sótt er um sérstakt leyfi til að nota þá", segir Mohammed Abdulla Ahli, yfirmaður flugmálayfirvalda í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann tekur fram að refsingu verði beitt gerist aðilar brotlegir um að fljúga slíkum flýgildum.
Flugmenn í nokkrum löndum hafa lýst yfir áhyggjum sínum er verið er að fljúga drónum of nálægt flugvöllum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.