flugfréttir
Annar flugmaðurinn brá sér frá og komst ekki aftur inn í stjórnklefann
- Heyrist hvar hann bankar og ber á dyrnar en hinn flugmaðurinn svaraði ekki
Samkvæmt upptökum úr hljóðritanum þá frá annar flugmaðurinn sér frá
Upptökur úr hljóðrita Germanwings-vélarinnar benda til þess að annar flugmaðurinn hafi brugðið sér frá og yfirgefið stjórnklefann og verið læstur úti er hann snéri til baka.
Yfirmaður franska flughersins segir að engin óeðlileg samskipti hafi átt sér stað milli flugmannanna í upptökunni skömmu eftir flugtak frá Barcelona en heyra má hvar annar flugmaðurinn er að banka á dyrnar en ekkert heyrist í hinum flugmanninum.
"Hann heyrist banka létt á dyrnar en enginn svarar og því næst heyrist hann berja fastar á dyrnar en samt engin svör frá hinum flugmanninum", segir rannsóknaraðili sem segir að heyra má undir það síðasta hvar flugmaðurinn reynir að brjóta upp hurðina.
Þótt að þessar upplýsingar varpi sterkara ljósi á aðstæður þá vekur það upp enn fleiri spurningar sem ekki er til svör við að svo stöddu.
"Við vitum ekki hvers vegna flugstjórinn fór út en það er augljóst að hinn flugmaðurinn er einn inni og opnaði aldrei dyrnar", segir aðili innan rannsóknarhópsins sem vill ekki koma fram undir nafni.
Aldrei kom neitt neyðarkall frá vélinni sem lækkaði hraðann í beinni stefnu um 32.000 fet á 8 mínútum uns hún brotlenti í fjallshlíðinni í Ölpunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.