flugfréttir

„Þeir sem eru tæpir á geði geta auðveldlega orðið flugmenn“

- Vill að flugfélög verði skyldug til þess að hafa eftirlit með geðheilsu flugmanna

26. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 18:18

Kathrine Marie er sálfræðingur og flugmaður og fylgist hún með geðheilsu danskra herflugmanna

Í kjölfar Germanwings-flugslyssins hefur farið af stað umræða varðandi geðheilsu flugmanna eftir að frönsk yfirvöld lýstu því yfir í morgun að allt bendir til þess að aðstoðarflugmaðurinn hafi stýrt vélinni vísvitandi til jarðar uns hún brotlenti í hlíðum Frönsku Alpanna.

"Þetta eru hræðileg tíðindi og núna beinast augun að geðheilsu flugmanna", segir Kathrine Marie í viðtali í Ekstrabladet en hún er bæði sálfræðingur og flugmaður.

Kathrine starfar við fylgjast með sálfræðilegri hegðun og geðheilsu meðal flugmanna í danska flughernum og útskýrir hún að farið sé eftir ströngum reglugerðum þar sem notast er við öflugt geðheilsueftirlit en Kathrine tekur fram að ekki sé reglugerð í fluginu sem skyldi öll flugfélög til slíks eftirlits.

"Í dag eru aðeins sálfræðipróf sem flugmenn verða að standast en enginn krafa gerð til ítarlegs eftirlits með geðheilsu þeirra".

Sem flugmaður segir Kathrine að hægt sé að draga lærdóm af atvikinu með aðstoðarflugmanninn hjá Germanwings og vill hún að flugfélög verði skyld til þess að skoða geðheilsu flugmanna á mun ítarlegri hátt þegar þeir fá atvinnuflugmannsskírteini í hendurnar og þegar sótt er um störf - "Það þarf að skoða hvers konar persónuleika verið er að treysta fyrir stjórnklefanum".

- Myndi ítarlegt geðheilsueftirlit koma í veg fyrir að flugmaður gæti framið voðaverk?

"Það er erfitt að tryggja árangur og ekkert öruggt en þetta snýst um að gera allt sem hægt er að gera til að minnka áhættuna", segir Kathrine.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga