flugfréttir
Mörg flugfélög hafa brugðist skjótt við: Alltaf tveir í stjórnklefanum
Aðstoðarflugmaður í stjórnklefa á Boeing 767 vél American Airlines á leið frá Boston til París
Fjöldi flugfélaga hafa brugðist skjótt við atburðum í kjölfar Germanwings-flugslyssins og tilkynnt um breyttar verklagsreglur þar sem þau ætla að skylda áhafnir til að sjá til þess að ætíð séu tveir áhafnarmeðlimir í stjórnklefanum hverju sinni sem þýðir að ef annar flugmannanna þarf að bregða sér frá þá verði einn flugliði inni á meðan.
Norwegian Air Shuttle
Norwegian Air Shuttle segir að til standi að taka upp þá stefnu sem krefst þess að ætíð séu tveir í stjórnklefanum á meðan vélin er á flugi og segir talsmaður félagsins að þessar reglur verið teknar í notkun eins fljótt og auðið er.
Icelandair
Þá hefur Icelandair m.a. ákveðið að taka upp þá vinnureglu þegar í stað á öllum flugleiðum og muni þá flugfreyja eða flugþjónn vera í stjórnklefanum ef annar flugmaðurinn yfirgefur klefann.
Air Canada
Air Canada segist ætla sjá til þess að ávallt séu tveir áhafnarmeðlimir í stjórnklefanum allt flugið og þá ætlar félagið að taka
upp sérstakt eftirlitsferli þar sem andleg heilsa nýrra flugmanna verður skoðuð.
easyJet
Einnig tilkynnti easyJet í dag að félagið ætli að gera slíkt hið sama og muni félagið frá og með morgundeginum (27. september) sjá til þess að aldrei verði einn flugmaður skilinn eftir í stjórnklefanum. - "Flugliði mun fara inn í stjórnklefann tímabundið ef flugstjórinn eða aðstoðarflugmaðurinn þarf að fara á klósettið", segir í tilkynningu frá easyJet.
Virgin Atlantic
Virgin Atlantic hefur haft það sem venju að láta flugliða vera inn í stjórnklefanum ef annar flugmannanna þarf að yfirgefa vélina en félagið ætlar sér núna að skylda slíkt fyrirkomulag á öllum flugleiðum.
Ryanair, Monarch, Jet2 og Finnair segja að starfsreglur um tvo áhafnarmeðlimi í stjórnklefa á öllum tímum hafi verið við lýði
upp á síðkastið.
Flugmálayfirvöld í Evrópu hafa ekki skyldað flugfélög til þess að tveir í áhöfn séu á öllum tímum í stjórnklefanum ólíkt
bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) sem kröfðust þess eftir 11. september árið 2001.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.