flugfréttir

Freyja heitir fyrsta A321 vél WOW Air

- TF-MOM lenti á Reykavíkurflugvelli í dag eftir stutt hopp frá Keflavík

26. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 20:56

Freyja mun hefja áætlunarflug á morgun til Boston sem verður fyrsta flug félagsins til Ameríku

Freyja er nafnið á nýju Airbus A321 vél WOW air sem lenti á Reykjavíkurflugvelli rétt fyrir klukkan 6 nú síðdegis en vélin er önnur tveggja af þeim sem WOW air keypti til að nota í Ameríkuflugi félagsins sem hefst á morgun.

Freyja hefur hingar til verið kölluð "mamman" þar sem skráningarnúmer vélarinnnar er TF-MOM en "pabbinn" mun síðan bætast við flotann en sú vél, sem ber skráninguna TF-DAD, kemur til landsins um helgina eða nánar tiltekið á laugardag.

Freyja er eins fjólublá og hugsast getur í stíl við liti WOW air en vélin fór í loftið frá Keflavíkurflugvelli nú síðdegis og tók einn krók upp á Akranes áður en hún lenti á Reykjavíkurflugvelli en vélin kom í vikunni til landsins eftir flug frá Frankfurt.

"Mamman" hefur fengið nafnið Freyja

Flug WOW air til Ameríku hefst á morgun með flugi til Boston í Massachusetts og verður TF-MOM send í fyrsta flug félagsins til vesturheims en þann 8. maí mun félagið hefja flug til Baltimore-flugvallarins (BWI) í Bandaríkjunum.

Það var Dorrit Moussaeiff sem gaf vélinni nafnið Freyja og jós alsherjargoðinn Hilmar Örn Hilmarsson vatni yfir vélina úr fornu horni fyrir hönd ásatrúarmanna til að blessa vélina.

Ekkert íslenskt flugfélag hefur áður haft Airbus A321 vél í flota sínum í áætlunarflugi en A321 er stærsti meðlimurinn í A320 fjölskyldunni og taka þær um 200 farþega.

Myndir af Freyju



Fleiri myndir má skoða á flickr.com/karlgeorg






Hér má sjá ljósmyndir sem Baldur Sveinsson náði af vélinni er hún var á sveimi yfir Faxaflóa rétt áður en hún lenti













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga