flugfréttir

Þurfti að hætta í flugþjálfun hjá Lufthansa árið 2008 vegna þunglyndis

- Var að ganga í gegnum sambandserfiðleika og sálfræðiaðstoðir síðustu vikurnar

27. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 09:51

Lubitz glímdi bæði við þunglyndi og erfiðleika í sambandinu við unnustu sína

Sagt er að þýski aðstoðarflugmaðurinn Andreas Lubitz hafi verið að ganga í gegnum sambandserfiðleika síðustu vikurnar áður en hann stýrði vél Germanwings til jarðar og þá hefur einnig komið í ljós að hann þáði reglubundna aðstoð frá sálfræðingi síðustu misseri í kjölfar þunglyndis.

Fram hefur komið Lubitz þurfti að taka sér hlé frá flugþjálfun hjá Lufthansa árið 2008 vegna þunglyndis og greindu sálfræðingar hann með alvarlega þunglyndisraskanir en hann hafði leitað sér faglegrar aðstoðar í kjölfar þess fram til síðasta dags.

Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, sagði í gær að það hefði orðið hlé á flugnáminu hjá Lubitz en hann hafði síðan haldið náminu áfram með góðum árangri.

"Það varð einhver truflun á náminu hans er hann var í flugþjálfun hjá okkur fyrir 6 árum síðan. Við skoðuðum færni hans og hæfni og fór hann aftur í þjálfun sem gekk síðan að óskum með góðum árangri. Hann var hæfur flugmaður á öllum sviðum", segir Spohr.

Spohr segir að Lufthansa bjóði starfsmönnum og áhöfnum að tilkynna með nafnleynd ef þeim grunar að samstarfsfólk þess sé ekki í ástandi til að fljúga.

"Flugkennarar verja tíma með flugnemum í þjálfun þar sem andleg heilsa er m.a. skoðuð en Lufthansa fer ekki ítarlega í að kanna sálfræðilegan bakgrunn meðal flugmanna með því að ræða við fjölskyldur þeirra", segir Spohr.

Þýska dagblaðið Bild segir að Lubitz hafi verið að ganga í gegnum erfiðleika í sambandi við unnustu sína síðustu vikurnar fyrir slysið en fram hefur komið að þau voru trúlofuð og hugðust gifta sig á næsta ári en síðustu dagana stefndi allt í sambandsslit.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga