flugfréttir
Farþegi gerði sér upp veikindi - Þóttust vera læknar og vildu hitta flugstjórann
- Yfirvöld á Indlandi neita sögusögnum um að tilraun hafi verið gerð til flugráns
Vélin var á leið frá London Heathrow til Indira Gandhi flugvallarins
Air India og indversk flugmálayfirvöld neita sögusögnum um að tilraun hefði verið gerð til flugráns um borð í vél Air India sem var á leið frá London Heahthrow til Delhi þann 17. mars sl.
Grunur leikur á að hópur farþega hafi gert tilraun til að komast inn í stjórnklefann eftir að einn farþegi gerði sér upp veikindi en í kjölfar komu nokkrir karlmenn honum til bjargar sem allir sögðust vera læknar og fóru þeir fram á að hitta flugstjórann.
Flugstjórinn neitaði að opna fyrir þeim og sagði að hann myndi ekki hleypa þeim inn né kom fram og tala við þá þrátt fyrir "veikindi" eins farþega sem er talinn hafa verið í slagtogi með "læknunum" fimm en allir eru þeir af pakistönskum uppruna.
Air India og flugmálayfirvöld á Indlandi segja að ekkert tilræði til flugráns hafi átt sér stað um borð í vélinni og að engin farþegi hafi verið um borð með pakistanskt vegabréf.
Flugmálayfirvöld á Indlandi hafa einnig gefið út tilmæli til flugfélaga í landinu að aldrei hleypa neinum óviðkomandi aðila inn í stjórnklefann undir neinum kringumstæðum.
Atvikið, sem átti sér stað á dögunu, hefur vakið upp einhvern óhug í farþegaflugi á Indlandi og er áhöfnum bent á að vera á verði.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.