flugfréttir

Rússland mun veita UTair fjárhagsaðstoð

3. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 08:44

Airbus A321 vél UTair

Ríkisstjórnin í Rússlandi hefur fallist á að veita flugfélaginu UTair fjárhagsaðstoð en ríkisstjórnin býðst þó aðeins til að veita félaginu innan við helming af því fé sem UTair taldi sig þurfa til að halda velli.

UTair fór fram á að fá 94 milljarða milljarða króna frá rússnesku ríkisstjórninni en tilboð hennar hljómar upp á 44 milljarða króna en félagið er skuldum vafið og er stærsti skuldhafinn Alfta-Bank bankinn sem hótar því að taka vélar félagsins í sína vörslu ef félagið greiðir ekki skuldir sínar.

Alexander Neradko, yfirmaður flugmála í Rússlandi, sagði að þau flugfélög í landinu sem eru í fjárhagserfðileikum geti ekki tekið fjárhagsaðstoð frá Rússlandi sem sjálfsögðum hlut og þyrftu þau að sýna fram á endurgerða fjármálaáætlun og gera greinargóða áætlun á endurskipulagi í sínum rekstri til að eiga von á því að fá aðstoð.

Fyrir árslok 2014 hafði UTair sagt upp um 800 manns, skorið leiðarkerfið niður um 1/5 en skuldir félagsins námu þá 2,9 milljörðum bandaríkjadala sem samsvarar 395 milljörðum króna.

Þá tók félagið tólf Airbus A321 vélar út umferð, sex Boeing 737-800 og 15 Bombardier CRJ200 og hætti við pöntun í sex Sukhoi Superjet 100 vélar.

Þá hefur félagið hætt við nokkrar Airbus A321 vélar en félagið hefur þó pöntun hjá Airbus upp á átta vélar af þeirri gerð og er stefnt að því að semja um að fá þær afhentar síðar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga