flugfréttir
Nemeth sannaði árið 1934 að flugvél með hringlaga væng gæti flogið
- Nemuth Parasol gat lent á 30 km/klst hraða í bakgarðinum
Nemuth Parasol var fyrsta hringvængja flugvélin sem náði að fljúga og haldast á lofti
Þær eru ófáar þær furðulegu flugvélar sem hafa flogið gegnum tíðina en þessari flugvél var flogið árið 1934 og var hún smíðuð af uppfinningamanninum og flugtæknifræðingnum Stephen Paul Nemeth.
Þessi flugvél hét Nemuth Parasol og var hún fyrsta hringvængjan sem náði að fljúga og haldast á lofti en Nemeth vildi sýna og sanna fyrir öðrum flugvélahönnuði að með hringlaga væng gæti flugvél tekið mjög skarpt á loft og lent ofurhægt líkt og fallhlíf.
Í blaðagrein sem kom út í amerísku dagblaði sagði að vélin væri svo einföld og lipur í loftinu að einstaklingur sem hefði aldrei áður flogið gæti lært á hana á 30 mínútum.
Hringvængjan var smíðuð árið 1934
Vélin, sem var einnig nefnd "diskavélin", náði 217 kílómetra hraða á klukkustund en hringlaga vængurinn, sem var festur á hefðbundinn flugvélabúk, kom með hæðarstýrum sem gerði það að verkum að vélin gat klifrað í loftið með 45 gráðu halla og lent á aðeins 32 kílómetra hraða og þurfti því aðeins nokkra metra fyrir lendinguna.
Nemuth sagði að vélin gæti ekki ofrisið vegna hins hringlaga vængs auk þess sem hann sagði að hún væri "aulaþétt" þar sem hver sem er gæti flogið henni og hægt væri að lenda henni var sem er og þess vegna í bakgarðinum en flugmaðurinn sem flaug henni, Dwight Morrow, fékk viðurnefnið "The Backyard Flyer".
Í grein Popular Aviation í júní 1934 segir að hringvængjan hafi lent nokkrum metrum frá blaðamönnum og myndatökumanni sem vissu ekki hvort þeir ætti að hlaupa á brott en vélin staðnæmdist
rétt fyrir framan þá á Curtiss-Reynolds flugvellinum í Illinois þegar vélinni var flogið í fyrsta sinn.
Við smíði hringvængjunnar notaði Nemuth skrokk af Argo-flugvél sem kom með 95 hestafla mótor en það taldi Nemuth of lítinn kraft fyrir vélina og var Lambeth-mótornum skipt út fyrir 125 hestafla Warner-hreyfil.
Vængdiskurinn var 4.8 metrar í þvermál og náði vélin 104 hnúta hraða þótt að venjulegur farflugshraði
vélarinnar hafi verið 82 hnútar og gat vélin lent á 17 hnúta hraða sem samsvarar 32 km/klst.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.