flugfréttir

Þessi flugvöllur hefur aldrei týnt farangri frá því hann opnaði árið 1994

12. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 17:42

Flugvallarstarfsmenn á Kansai-flugvelli láta haldföngin og merkingar snúa upp

Það er algengt að ferðatöskur skili sér ekki á áfangastað og þurfa sumir farþegar að bíða eftir að farangurinn komi með næstu vél en slíkt getur gerst þegar skipt er um vél.

Kansai-flugvöllurinn í Japan (KIX) getur státað sig af því að hafa aldrei glatað ferðatösku frá því hann opnaði árið 1994 en flugvöllurinn hefur einnig lagt sig fram við að skila farþegum farangri eins fljótt og auðið er svo þeir geti náð tengiflugi.

Frá Kansai-flugvellinum í Japan (KIX)

Ein aðferðin sem hefur verið notuð er að starfsmenn við farangursflokkum setja ferðatöskurnar á færibandið þannig að merkingar og haldföng snúa að farþegum sem auðveldar þeim að sjá merkingarnar og taka töskuna af.

Þessar upplýsingar koma fram í kjölfar niðurstöðu Skytrax sem gaf á dögunum einkum fyrir meðhöndlun á farangri á flugvöllum og var Kansai-flugvöllurinn í efsta sæti.

Á topp 10 listanum eru þrír japanskir flugvellir sem fá bestu einkunn er kemur að afhendingu á farangri.

1. - Kansai International Airport (KIX)
2. - Hong Kong International Airport (HKG)
3. - Singapore Changi Airport (SIN)
4. - Taiwan Taoyuan International Airport (TPE)
5. - Incheon International Airport (ICN)
6. - Tokyo Haneda International Airport (HND)
7. - Copenhagen Airport (CPH)
8. - Munich Airport (MUC)
9. - Zurich Airport (ZRH)
10. - Narita International Airport (NRT)

Skytrax gerði úttekt á 550 flugvöllum í 112 löndum en einnig var tekið með í reikninginn ummæli frá 13 milljónum farþega sem völdu Chek Lap Kok flugvöllinn í Hong Kong sem besta flugvöll í heimi er kemur að farangursafhendingum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga