flugfréttir
Flugvallarstarfsmaður sofnaði í fraktinni á Boeing 737 sem fór í loftið með hann lokaðan inni
- Snéru við þegar heyrðist til hans banka og öskra
Vélin á flugvellinum í Seattle eftir að hún lenti aftur með starfsmanninn sem hafði lokast inni í fraktinni
Boeing 737 vél frá Alaska Airlines þurfti að snúa við í gær eftir flugtak frá Seattle eftir að flugvallarstarfsmaður læstist inni í fraktinni en hann hafði hvílt sig og óvart sofnað.
Vélin fór í loftið frá Seattle á leið til Los Angeles þegar heyrðist til hans þar sem hann barði í þilið undir farþegarýminu og öskraði hástöfum.
Vélin hafði verið í loftinu í 14 mínútur þegar flugstjórinn snéri við aftur til Seattle-Tacoma (SEA) - "Eftir lendingu fannst flugvallarstarfsmaður frá Menzies Aviation í fraktinni innan um ferðatöskurnar en rýmið er þrýstijafnað og hitastillt", sagði Alaska Airlines í tilkynningu.
Starfsmanninum bjargað úr fraktinni
Starfsmaðurinn sagði að hann hafði lagt sig vegna þreytu og steinsofnaði óvart og vaknaði við að vélin var komin í loftið. Hann virtist við hestaheilsu og gat hann gengið sjálfur úr vélinni er frakhurðin var opnuð en hann var fluttur til rannsóknar á sjúkrahús til öryggis.
Jesse Sycuro, farþegi sem var um borð, heyrði að verið var að berja og banka en farþegum var tilkynnt síðar að vélin hefði snúið við þar sem manneskja hefði lokast inn í fraktinni.
Flugvélalöggur, sem voru um borð, létu flugliðana vita sem tilkynntu flugmönnunum um ástandið - "Þeir bönkuðu á móti og reyndu að ná samskiptum við hann og kölluðu á móti að vélin væri að snúa við", segir Sycuro.
Talið er að flugvallarstarfsmaðurinn muni hugsa sig tvisvar um áður en hann fær sér "síestu" innan um ferðatöskurnar en flugmálayfirvöld munu rannsaka atvikið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.