flugfréttir

Asiana-vélin kom of lágt inn til lendingar og flaug gegnum blindlendingarkerfið

15. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 23:26

Vélin var að koma inn til lendingar í gær frá Seoul þegar slysið átti sér stað

Komið hefur í ljós að Airbus A320 vél Asiana Airlines kom of snemma inn til lendingar og flaug á blindlendingarmöstur við brautarendann á flugvellinum í Hiroshima í gær.

Vélin lenti mjög harkalega eftir flug frá Seoul, rann út af brautinni og snérist í hálfhring utanbrautar áður en hún staðnæmdist með þeim afleiðingum að 27 manns slösuðust um borð. Lítils háttar rigning var á flugvellinum er slysið átti sér stað og þoka en vélin varð fyrir skemmdum á vængjum og hreyflum en farþegar og áhöfn yfirgáfu vélina niður um neyðarrennibrautir.

Skemmdirnar á blindflugskerfinu sést hér greinilega
og hvar vélin staðnæmdist

Hluti af aðflugskerfinu brotnaði og festist í hjólabúnaði vélarinnar en að sögn eins farþega um borð þá komu eldglæringar og reykur úr hreyflinum á meðan hún skoppaði á brautinni áður en hún rann út af.

"Vélin hristist svo mikið að ég hélt að ég myndi kastast út", segir Midori Okazaki, farþegi sem var um borð í vélinni.

Rannsóknarnefnd flugslysa í Japan hefur sent sérfræðinga til Hiroshima en einnig hafa flugslysasérfræðingar frá Suður-Kóreu verið sendir á staðinn auk yfirmanna frá Asiana Airlines.

Flugslysasérfræðingar hafa í dag reynt að komast að því hvers vegna vélin kom of lágt inn til lendingar en brak úr blindlendingarkerfinu dreifðist yfir stórt svæði en kerfið er staðsett í um 300 metra fjarlægð frá brautarendanum.

Asiana Airlines segir að flugstjóri vélarinnar hafi 8.223 flugtíma að baki og flugmaðurinn rúma 1.500 flugtíma en vélin var smíðuð árið 2008.

Atvikið þykir sambærilegt því er átti sér stað í júlí árið 2013 í San Francisco er Boeing 777 vél frá Asiana Airlines kom of lágt inn til lendingar með þeim afleiðingum að hjólastell vélarinnar rákust í sjóvarnargarðinn við flugbrautina.

Myndir:

















  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga