flugfréttir

Uppsetning á Wi-Fi í flugvélum hjá Panasonic Avionics mun tvöfaldast í ár

16. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:34

Sífellt fleiri flugfélög vinna nú að því að koma upp Wi-Fi um borð í vélum sínum

Panasonic Avionics ætlar að tvöfalda afkastagetu sína í uppsetningu á Wi-Fi netkerfi um borð í farþegaþotum vegna mikillar eftirspurnar frá flugfélögunum sem vilja sjá til þess að farþegar geti komist á Netið í háloftunum.

Flugfélögin eru ekki eingöngu að einblína á Wi-Fi fyrir farþega heldur einnig fyrir auglýsendur sem geta með þessu móti náð til farþega á borð við hótel og bílaleigur.

Panasonic Avionics segir að fyrirtækið hafi 46% markaðshlutdeild á þráðlausa internetmarkaðinum í fluginu frá því árið 2009 og sé fyrirtækið með forskot á aðra aðila á borð við OnAir, Gogo og Row 44.

Neil James, sölustjóri hjá Panasonic Avionics

"Árið 2014 settum við upp Wi-Fi kerfi um borð í 488 farþegaþotum en við þörfum að tvöfalda fjöldann á þessu ári og setum okkur markmið að ná að koma fyrir kerfinu um borð í 1.000 vélum", segir Neil James, sölustjóri hjá Panasonic Avionics.

Þótt að þráðlaust net hafi fyrst eingöngu verið bundið við flugvélar sem fljúga langar flugleiðir þá hafa hafa flugfélög, sem fljúga stuttar flugleiðir, verið í auknu mæli að setja upp Wi-Fi um borð í minni vélum.

James telur að um 12.000 minni farþegaþotur með einum gangi verði komnar með Wi-Fi á næstu 10 árum en Panasonic Avionics hefur keypt hugbúnaðarfyrirtækið Tactel sem sérhæfir sig í þróun á smáforritum og viðbótarkerfum fyrir Wi-Fi markaðinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga