flugfréttir

Leitarsvæðið verður tvöfaldað ef MH370 finnst ekki í næsta mánuði

16. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 12:38

Warren Truss, forsetisráðherra Ástralíu, Yang Chuantang, samgönguráðherra Kína og Liow Tiong, samgönguráðherra Malasíu, á fundinum í morgun

Til stendur að tvöfalda stærðina á leitarsvæðinu í Suður-Indlandshafi þar sem leit hefur farið fram að malasísku farþegaþotunni ef ekkert brak úr vélinni finnst þegar núverandi leit lýkur í maí í vor.

Leitarsvæðið í dag er 60 þúsund ferkílómetrar að stærð en ef leitin mun ekki bera neinn árangur í maí þá verður það stækkað upp í 120.000 ferkílómetra sem er 17 þúsund ferkílómetrum stærra en flatarmál Íslands.

Warren Truss, forsetisráðherra Ástralíu, Yang Chuantang, samgönguráðherra Kína og Liow Tiong, samgönguráðherra Malasíu, hittust í morgun í Kuala Lumpur þar sem framhald leitarinnar var rædd þar sem þessi ákvörðun var tekin.

Sónarmyndir af hafsbotninum í Suður-Indlandshafi

Ef leitarsvæðið verður stækkað um helming mun leitin framlengjast um eitt ár í viðbót en þá verður leitað á öllum þeim mögulegum svæðum sem sérfræðingar hafa reiknað út að komi til greina en það 60 þúsund ferkílómetra svæði, sem leitað hefur verið á núna, er heitasta svæðið þar sem talið eru mestar líkur að vélina er að finna eftir þá útreikninga sem voru gerðir á gögnum úr gervitungli.

Fjögur leitarskip hafa sl. mánuði leitað á 60% af núverandi leitarsvæðin, þrjú frá hollenska fyrirtækinu Fugro og eitt frá ástralska fyrirtækinu Go Marine Group.

Ráðherrar landanna þriggja ákváðu einnig að ef brak úr vélinni finnst að þá verði gert allt til að ná því sem hægt er að bjarga fyrir þá flugslysarannsókn sem myndi fara fram í samræmi við "Annex 13" sáttmálann.

Ráðherrarnir voru staðráðnir í að allt yrði gert til að komast til botns í leitinni til að binda endi á þá óvíssu sem hefur hrjáð aðstandendur og fjölskyldur þeirra sem voru um borð í flugi MH370.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga