flugfréttir

Wizz Air á leið til Íslands

- Munu fljúga til Keflavíkur frá Gdansk í Póllandi

16. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:29

Airbus A320 vél Wizz Air

Nýtt flugfélag er að bætast við í flóru þeirra flugfélaga sem flúga til Keflavíkurflugvallar en lágfargjaldaflugfélagið Wizz Air hefur ákveðið að hefja flug til Íslands frá Gdansk í Póllandi.

Wizz Air mun fljúga fyrsta flugið til Keflavíkur þann 19. júní og verður flogið tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum og er flugið nú þegar bókanlegt.

Brottför frá Gdansk verður klukkan 17:20 og lent á Keflavíkurflugvelli kl. 19:20 og til baka verður flogið kl. 19:55 og lent í Gdansk klukkan 01:30.

Flogið verður milli Gdansk og Keflavíkur með Airbus A320 vélum en floti félagsins telur 55 slíkar vélar

Flugleiðum frá Keflavíkurflugvelli fjölgar sífellt og fagnar Isavia þessum tímamótum og býður Wizz Air velkomið ört stækkandi í hóp viðskiptavina en Keflavíkurflugvöllur verður 111 áfangastaður félagsins.

Það má því segja að fjólubláum flugfélögum með nafni sem byrjar á "W" fer fjölgandi í Keflavík.

Um Wizz Air

Wizz Air er ungverkst lágfargjaldaflugfélag með höfuðstöðvar í Búdapest og er félagið 7. stærsta lágfargjaldafélag Evrópu á eftir Ryanair, easyJet, Air Berlin, Norwegian Air Shuttle, Germanwings og flybe.

Flugfloti Wizz Air á flugvellinum í Búdapest

Félagið er það stærsta í Ungverjalandi er kemur að flugflota þótt það sé ekki opinbert flugfélag landsins og flýgur það til 110 áfangastaða í 35 löndum.

Meðal þeirra landa sem félagið flýgur til utan Evrópu er Azerbaijan, Egyptaland, Ísrael og Tyrkland en einnig flýgur félagið til Dubai.

Wizz Air var stofnað árið 2003 og er framkvæmdarstjóri þess József Váradi, fyrrum framkvæmdarstjóri Malév Hungarian Airlines en stærstu umsvif félagsins eru í Ungverjalandi, Póllandi og í Búlgaríu en félagið hefur 20 aðalflugvelli þaðan sem flogið er til margra áfangastaða.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga