flugfréttir

Saudi Arabian hyggst panta 100 þotur á næstu 5 árum

17. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 16:33

Boeing 777-200ER vél Saudi Arabian Airlines í flugtaki á CDG

Stjórn Saudi Arabian Airlines hefur ákveðið að auka umsvif félagsins verulega á næstu 5 árum með því að panta allt að 100 farþegaþotur sem er hluti af framtíðaráætlun félagsins sem gildir frá 2015 til ársins 2020.

Saudi Arabian pantaði seinast 90 farþegaþotur frá Boeing sem allar hafa verið afhentar fyrir utan tólf vélar, þrjár fraktvélar af gerðinni Boeing 777F, átta Dreamliner-vélar (Boeing 787-9) og eina einkaþotu af gerðinni Boeing 747-8.

Saleh bin Nasser Al-Jasser, forstjóri Saudi Arabian, segir að nýjar vélar hafa verið að bætast við í hópinn sl. ár í samræmi við fjölgun farþega auk þess sem félagið hefur aukið umsvif sín í millilandaflugi.

Ekki hefur verið ákveðið neitt um fjölda véla eða hvaða flugvélaframleiðandi verður fyrir valinu en félagið hefur bæði vélar frá Boeing og Airbus í flotanum auk 15 véla frá Embraer.

Saudi Arabian hefur fengið tvær síðustu Boeing 777-300ER vélarnar afhentar og er því komið með 20 slíkar vélar í flotann en í desember er von á fyrstu Dreamliner-vélinni sem er af gerðinni Boeing 787-9.

Félagið vinnur nú að því að finna leiðir til að draga úr þeim áhrifum sem sandstormar hafa haft á starfsemi félagsins sem veldur seinkunum þar sem nauðsynlegt er undir þeim kringumstæðum að fresta flugi af öryggisástæðum en margir flugvellir í Sádí-Arabíu lamast þegar sandurinn fer að fjúka í eyðimörkinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga