flugfréttir
Flugmaður flaug á bát, forðaði sér frá borði og tók eldhafið upp á myndband
Richard Simile tekur myndband af brennandi flaki vélarinnar skömmu eftir að hann forðaði sér úr vélinni
Flugmaður einn í Flórída slapp með skrámur er hann brotlenti splunkunýrri Mooney vél sinni og klessti á kyrrstæðan bát á þurru landi í Lakeland í Flórída.
Flugmaðurinn Richard Simile, sem er 55 ára, var á leið frá bænum Stuart á Sun ‘n Fun flugsamkomuna í Lakeland þegar mótorinn missti skyndilega afl en samkvæmt sjónarvotti, rakst vélin með væng utan í hlið á íbúðarhúsi og nokkur pálmatré áður en vélin brotlenti og klessti á bát.
Simile náði að forða sér úr vélinni áður en hún varð alelda en hafði þó tíma til að taka logandi flakið upp á myndband á farsímann áður en sjúkralið mætti á staðinn til að flytja hann á sjúkrahús en hann hlaut nokkrar skrámur í brotlendingunni.
Simile er eigandi að flugvélasölu og var vélin enn í eigu Mooney er hann brotlenti henni en vélin var smíðuð fyrr á þessu ári.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.