flugfréttir
EasyJet skoðar möguleika á að taka Airbus A321
Airbus A320 vél easyJet
EasyJet er að skoða möguleika á að taka í notkun Airbus A321 vélar en félagið segir að enn hafi þó engin ákvörðun verið tekin.
Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air hefur t.a.m. þegar breytt pöntun sinni hjá Airbus með því að taka A321 vélar með sem mestum sætafjölda sem taka 230 farþega.
Carolyn McCall, framkvæmdarstjóri easyJet, segir að ef félagið tæki Airbus A321 vélar að þá væri hægt að fljúga lengri vegalengdir og þá til fjarlægari áfangastaða en gert er í dag.
McCall segir að félagið eigi í viðræðum við Airbus um A321 vélina og væri þá inn í myndinni að breyta pöntun félagsins sem á von á að fá 158 Airbus A320 vélar til viðbótar.
EasyJet segir að nauðsynlegt sé þá að skoða hvert hægt væri að fljúga A321 vélinni og þá sé líka verið að skoða möguleiki á að taka Airbus A320 vélar með enn fleiri sætum fyrir þá allt að 180 farþega.
Airbus er að þróa útgáfu af Airbus A320 vélinni með sætum fyrir allt að 189 farþega en evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) hafa gefið leyfi fyrir allt að 195 farþegum um borð í Airbus A320 vélina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.