flugfréttir
Korean Air Aerospace mun framleiða vænglinga á Airbus A330neo
Tölvugerð mynd af Airbus A330neo
Airbus hefur valið kóreska fyrirtækið Korean Air Aerospace Division (KAL-ASD) til að sjá um að framleiða íhluti í næstu kynslóð af Airbus A330 vélinni sem kynnt var í fyrra, Airbus A330neo.
Korean Air Aerospace mun framleiða Sharklets-vænglina á A330-800neo og A330-900neo og mun framleiðslan fara fram í verkmiðjum fyrirtækisins í borginni Busan í Suður-Kóreu en þaðan verða vænglingarnir fluttir til Toulouse í Frakklandi.
Búnaðurinn verður blanda af vænglingum og framlengingu á vængenda sem mun lengja vænghafið úr 60,3 metrum upp í 64 metra sem mun einnig minnka drag og auka sparneytni vélarinnar.
Nýju vænglingarnir, ásamt endurbættari hönnun á A330neo vélinni og nýju Trent 7000 hreyflunum frá Rolls-Royce, munu gera vélina allt að 14% sparneytnari en þær hefðbundnu Airbus A330 vélar eru í dag
Korean Air Aerospace hefur verið í samvinnu við Airbus í yfir 25 ár en fyrirtækið hefur m.a. séð um smíði
á Sharklets-vænglingunum á Airbus A320 vélarnar, skilrúmum fyrir einingar á skrokk a A320 vélunum og framleiðslu á frakthlerum fyrir Airbus A350 vélina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.