flugfréttir
Þrír farþegar misstu meðvitund um borð í vél United Express
Vélin við hliðið á flugvellinum í Buffalo í New York
Farþegaþota af gerðinni Embraer ERJ-175 frá United Express neyddist til að lenda í Buffalo sl. miðvikudag á leið sinni frá Chicago til Hartford í Connecticut eftir að þrír farþegar um borð misstu meðvitund.
Flugmenn vélarinnar töldu að loftþrýstingur um borð hefði fallið niður og lækkaði vélin flughæð um 25.000 fet á nokkrum mínútum úr 37.000 fetum en flugfélagið Skywest Airlines, sem annast flugreksturinn fyrir United Express, sagði að þrýstingurinn um borð hefði verið í lagi.
Við nánari skoðun kom ekkert í ljós sem benti til þess að þrýstingurinn hefði fallið niður en önnur vél af sömu gerð var fengin til sem flaug með farþeganna á leiðarenda.
Aðrir farþegar og flugliðar átt erfitt með andardrátt og þar á meðal kona sem aðstoðaði flugliða við að hlúa að fyrsta farþeganum en skömmu síðar missti annar farþegi meðvitund og sá þriðji í kjölfarið.
Allir þeir farþegar, sem sögðust finna fyrir óþægindum, fengu aðhlynningu er þeir yfirgáfu vélina við landganginn en bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvikið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.