flugfréttir

Tveir ölvaðir farþegar köstuðu hnetum í flugliða á leið til Cancun

- Dreamliner-vél Thomson Airways losaði sig við dólgana á Bermúda-eyjum

24. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 17:05

Dreamliner-vél Thomson lenti með hnetudólganna á Bermúda-eyjum þann 13. apríl á leið sinni til Cancun frá Gatwick

Tveir breskir karlmenn hafa verið sektaðir um rúmar 400.000 krónur hvor og gætu átt yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að hafa kastað hnetum í flugliða um borð í Dreamliner-vél Thomson Airways á leið til Cancun í Mexíkó fyrr í mánuðinum.

Mennirnir tveir fóru mjög ölvaðir um borð í vélina á Gatwick-flugvelli en sátuá sitthvorum staðnum í vélinni. Þegar leið á flugið versluðu þeir sér hnetur af flugfreyju og köstuðu veski á milli sín til að greiða fyrir veitingarnar en einn farþegi fékk veskið í höfuðið.

Þegar flugfreyjan bað þá um að hegða sér betur brást annar þeirra illa við og grýtti hnetum í hana og auk þess sem þeir köstuðu nokkrum sterlingspundum í höfuð hennar.

Flugstjóri vélarinnar neyddist til að lenda vélinni á Bermuda-eyjum þar sem félagarnir tveir voru handteknir en þeir sögðu við réttarhöld að þeir hefðu blandað saman svefnlyfjum við áfengisneyslu sína sem hefði orsakað hegðun þeirra.

Mennirnir tveir eiga yfir höfðu sér fangelsisvist geti þeir ekki greitt sektina á Bermúda-eyjum en lögmaður þeirra vill að sektin verði lækkuð þar sem þeir hafa aðeins rúmar 90.000 krónur á sér báðir til samans.









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga