flugfréttir

Öryggismál Thai Airways undir smásjá - Félaginu bannað að auka umsvif sín

- Tælensk stjórnvöld eiga erfitt með að framfylgja kröfum ICAO

26. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:55

Thai Airways ætlar sér að verða öruggasta flugfélagið í Asíu innan árs

Thai Airways ætlar sér að verða eitt öruggsta flugfélagið í Asíu innan eins árs en félagið hefur verið undir smásjá meðal ICAO sem hefur hafið rannsókn á öryggismálum hjá félaginu eftir að í ljós kom að þau standast ekki lágmarkskröfur sem farið er fram á.

Alþjóðaflugmálastofnun gerði úttekt á öryggismálum Thai Airways í janúar sl. og kom þá í ljós að skortur sé á flugvirkjum hjá félaginu og félagið skortir leyfi til að flytja hættulegan varning um borð í vélum sínum og þá fór Airbus A330 vél Thai Airways út af flugbraut í lendingu í Guangzhou í september 2013.

Thai Airways ætlar að láta matsfyrirtæki leiðbeina sér í öryggisferlinu sem er sami aðili sem gerir úttekt á öryggismálum þeirra flugfélaga sem sækja um aðild að Star Alliance flugbandalaginu svo félagið muni standast kröfur meðal allra stofnanna í fluginu.

ICAO og flugmálayfirvöld í Tælandi hafa m.a. bannað Thai Airways að hefja flug til nýrra áfangastaða í Kína, Japans og til Suður-Kóreu sem til stóð að fljúga og þá eru tælensku lágfargjaldafélögin Thai AirAsia X, NokScoot og Asia Atlantic Airlines einnig undir smásjá hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni.

Í flugskýli Thai Airways á Suvarnabhumi-flugvellinum í Bangkok

Þá hafa stjórnvöld í Ástralíu einnig áhyggjur af öryggismálum Thai Airways og er búið að fara fram á sérstakt eftirlit fyrir brottför á þeim vélum sem fljúga til Ástralíu.

Neil Hansford, ástralskur flugöryggissérfræðingur, segir að ICAO sé búið að vara tælensku ríkisstjórnina við frá árinu 2009 en yfirvöld í Tælandi reyna nú að gera allt til að öryggismálin hafi sem minnstu áhrif á flugáætlun félagsins.

"Þetta er bara gott dæmi um að flugmálayfirvöld ráða ekki lengur við það hversu hröð þróun er að eiga sér stað í fluginu", segir Hansford.

"Stjórnvöld í Tælandi hafa ekki náð að sjá til þess að framkvæmda nauðsynlegt eftirlit á öryggismálum hjá flugfélaginu svo það uppfylli alþjóðakröfur".

Hansford segir að kerfið sé að brotna undan álagi sem sést vel í fluginu í Indónesíu þar sem indónesísk flugfélög hafa pantað samtals yfir 500 nýjar faþegaþotur en með þeim öra vexti hafa mörg flugfélög komið sér á svartan lista t.a.m. í Evrópu þar sem öryggismálin enda á hakanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga