flugfréttir

Myndband: Viðtal við háloftaflugmann NASA á Keflavíkurflugvelli

- Flýgur vélinni upp í hæð 70.000 fet þar sem geimurinn tekur við

26. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 08:39

ER-2 er rannsóknarvél NASA en hún er einnig betur þekkt sem U-2 njósnavélin

ER-2, háloftarannsóknarvél á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar (NASA), var hér á landi á dögunum til að rannsaka áhrif loftslagsbreytinga á jöklum á Grænlandi en vélin er sérstaklega hönnuð til að fljúga í mikilli lofthæð.

Hér má sjá áhugavert viðtal sem Guðni Sigurðsson hjá Isavia tók við Denis Steele, flugmann vélarinnar, sem betur er þekkt sem njósnavélin U-2, smíðuð af Lockheed sem einnig fékk viðurnefnið "Dragon Lady" en NASA-útgáfan af vélinni kallast ER-2 (Earth Resources -2).

Dennis útskýrir hér þau verkefni sem vélin er notuð í en hún getur flogið upp í allt að 70.000 feta hæð sem er tvöfalt hærra en sú flughæð sem farþegaþotur halda sig í.

Dennis getur séð með eigin augum að jörðin er hnöttótt, svo hátt fer vélin og er hún rétt við endamörk lofthjúpsins þar sem geimurinn tekur við þar sem blár litur himinsins breytist í svart.

ER-2 kom áður til landsins árið 2012 og segir Sigurður Björgvin Magnússon, snjókóngur á KEF, að það sé alltaf skemmtilegt þegar svona vélar koma til landsins og það sama má segja um B-52 vélina.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga