flugfréttir

Fjórir látnir eftir flugslys á hraðbraut norður af Atlanta

georgia, us

8. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 23:11

Vélin sem fórst var af gerðinni Piper PA-32

Fjórir fjölskyldumeðlimir eru látnir eftir flugslys á Interstate 285 hraðbrautinni skammt norður af Atlanta í Georgíu í dag.

Vélin, sem var eins hreyfils Piper PA-32, fór í loftið frá DeKalb-Peachtree flugvellinum á þriðja tímanum í dag að íslenskum tíma en skömmu eftir flugtak spurði flugumferðarstjórinn flugmanninn hvort að hann væri að fljúga í þá stefnu sem hann hafði gefið honum upp. Flugmaðurinn svaraði því játandi en sagði að það væri komið upp vandamál og skömmu síðar hann að þau væru að missa hæð.

Flutningabílstjóri sá er vélin kom á móti honum og heyrði er hún rakst utan í trukkinn hans. "Ég stoppaði og sá að spegillinn lá niðri og því næst sá ég vélina í ljósum logum á hraðbrautinni.

Slökkviliðsmaður við flak vélarinnar á Peachtree Industry Boulevard í dag

Annar ökumaður sagðist hafa stöðvað bílinn sinn og ætlaði hann að hlaupa og bjarga fólkinu úr vélinni en hún var þá alelda og var ekkert hægt að gera.

Um borð í vélinni var flugmaðurinn, Greg Byrd, tveir synir hans, Phillip Byrd og Christopher Byrd og Jackie Byrd, unnusta Christopher en enginn komst lífs af. Þá var eitt gæludýr einnig með í för.

Fjölskyldan var á leiðinni til Mississippi til að vera viðstödd útskrift Robert Byrd sem er sonur Gregs.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú slysið en annar hluti hraðbrautarinnar var lokaður í dag í nokkrar klukkustundir.











  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga