flugfréttir

Icelandair mun hefja flug til Chicago

- Flogið verður allt árið um kring frá mars 2016

12. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 15:38

Flug Icelandair til Chicago mun hefjast í mars árið 2016

Icelandair hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til O´Hare flugvallarins í Chicago í Bandaríkjunum í mars 2016 og verður flogið til og frá borginni allt árið um kring.

Fyrst um sinn verður flogið fjórum sinnum í viku, á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum. Fyrsta flugið verður 16. mars og er sala er þegar hafin en Chicago verður fimmtándi áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu.

Icelandair flaug til Chicago á fimmtán ára tímabili, frá 1973 til 1988 og tekur nú upp þráðinn 28 árum síðar.

„Chicago hefur verið til skoðunar hjá okkur um hríð. Með stækkun leiðakerfisins, fjölgun áfangastaða og aukinni tíðni, teljum við hafa skapast tækifæri fyrir okkur til að fara inn á þennan stóra markað sem Chicago er“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

„Chicagosvæðið er rúmlega tíu milljón manna markaður og með beinu flugi stefnum við að því að margfalda ferðamannafjöldann frá svæðinu til Íslands og bjóða auk þess upp á frábæra tengimöguleika til áfangastaða okkar í Evrópu.

Að auki er Chicago sögufræg og spennandi borg fyrir Evrópubúa og okkur Íslendinga að heimsækja“, segir Birkir.

Chicago er þriðja stærsta borg Bandaríkjanna á eftir Los Angeles og New York og mikil miðstöð athafnalífs, menningar og lista. Hinn þekkti, og ný-endurkjörni borgarstjóri Chicago, Rahm Emanuel, fyrrum starfsmannastjóri Hvíta hússins, segist í yfirlýsingu O‘Hare flugvallar um Icelandair-flugið fagna þeim tækifærum og viðskiptum sem hinn nýi áfangastaður færi íbúum borgarinnar.

Icelandair á jafnframt í viðræðum við ferðamálayfirvöld í Montreal og alþjóðaflugvöllinn í borginni varðandi mögulegt beint flug eins og fram hefur komið á samfélags- og fréttamiðlum á undanförnum dögum og niðurstöðu úr þeim samskiptum er að vænta á næstu vikum.

Icelandair flýgur á þessu ári til 39 áfangastaða, 14 í Norður-Ameríku og 25 í Evrópu. Tveir nýir áfangastaðir bætast við á árinu, Birmingham í Bretlandi, sem byrjað var að fljúga til í febrúar, og Portland í Oregon í Bandaríkjunum, en fyrsta flugið þangað verður í næstu viku, þriðjudaginn 19. maí.

Meðfylgjandi er kort sem sýnir leiðakerfi Icelandair þar sem Chicago hefur verið bætt við.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga