flugfréttir

Baldur Sveinsson gefur út bókina Fokker í 50 ár á Íslandi

13. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 15:24

Fokker í 50 ár á Íslandi er nýjasta ljósmyndabók Baldurs Sveinssonar

Tímamót eru á morgun í flugsögu Íslands er 50 ár verða liðin frá því að fyrsti Fokkerinn kom til landsins.

Það var 14. maí árið 1965 að Flugfélag Íslands fékk fyrstu Fokker-vélina sem var af gerðinni Fokker F-27 Friendship en þær leystu af hólmi Douglas DC-3 Dakota vélarnar sem höfðu verið notaðar í innanlandsfluginu fram að því.

Fokkerinn er stór hluti af samgöngusögu Íslendinga og íslenskri flugsögu en vélarnar hafa verið sniðnar að þörfum innanlandsflugsins og hentað einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður.

Í tilefni að þessum tímamótum hefur flugvélaljósmyndarinn Baldur Sveinsson gefið úr ljósmyndabókina "Fokker í 50 ár á Íslandi" sem er nýkomin út en hann hefur tekið fjölmargar myndir af Fokker-vélunum í gegnum tíðina, bæði af Fokker F-27 Friendship og Fokker 50.

Fokker F-27 Friendshi yfir Elliðaárdalnum árið 1984

Komu Fokker F-27 Friendship var líkt við þeim tímamótum er Skymaster tók við af Viscount vélunum í millilandafluginu en Friendship-vélin var 55 mínútur á leið til Akureyrar en það tók hinsvegar DC-3 vélina hátt í eina og hálfa klukkustund að fljúga norður yfir heiðar.

Fokker Friendship F-27 flaug í 27 ár fyrir Flugfélag Íslands eða þar til 18. febrúar árið 1992 en þá kom Ásdís til landsins sem var fyrsta Fokker 50 vélin en þá hét félagið Flugleiðir sem skiptist í innanlandsflug og millilandaflug.

Baldur Sveinsson segir að hann hafi vaknað upp einn morguninn í apríl með hugmynd af bók með myndum af Fokker-vélunum og þá var ekki aftur snúið og nokkrum dögum síðar var hún komin í prent.

Bókin "Fokker í 50 ár á Íslandi" hefur að geyma fjölda ljósmynda af vélunum og fróðleik en fyrir þá sem vilja fá eintak af bókinni þá er hægt að hringja í Baldur í síma 896-8878 en verð bókarinnar eru 5.000 krónur.

Bókin er ein af þeim fjölmörgu sem Baldur hefur gefið út en aðeins eru 5 mánuðir frá því að hann gaf út bókina Flugvélar 2014 sem kom út rétt fyrir jólin með fjórum mismunandi kápum.

Sýnishorn úr bókinni "Fokker í 50 ár á Íslandi"







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga