flugfréttir

American sparaði margar milljónir á ári með því að taka eina ólífu úr salatinu

- Einn þekktasta sparnaðarsagan í viðskiptaheiminum

16. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 12:02

Bob Crandall stjórnaði American Airlines til ársins 1998

Flugfélög víða um heim hafa farið ýmsar leiðir til að ná fram sparnaði í rekstri en „sagan um ólífuna“ er ein þekktasta sagan í fluginu og í viðskiptaheiminum sem hefur verið sögð mörgum sinnum.

Margt smátt gerir eitt stórt er staðreynd sem flestir eru sammála um og þegar kemur að flugfélagi sem hefur fleiri hundruð vélar í flota sínum, sem fljúga þúsundir flugferða á dag um allan heim, þá kemur ekki á óvart að þetta smáa er fljótt að telja.

American Airlines ákvað árið 1987 að fækka um eina ólífu í salatinu í hverri máltíð sem borin var fram á fyrsta farrými um borð í öllum vélum félagsins.

Flugliðar hjá American Airlines gáfu því gaum að mjög fáir farþegar átu ólífurnar í salatinu þegar matarbökkunum var safnað saman og fóru margar ólífur beint í ruslið.

American Airlines sparaði 4 milljónir af ólífum um borð
í 1,2 milljónum flugferða

Bob Crandall, þáverandi forstjóri félagsins, frétti af því og fékk hann þá hugmynd að fækka um eina ólífu í salatinu þar sem flugfélagið var í miklum sparnaðaraðgerðum á þeim tíma.

Crandall taldi að litlar líkur væru á því að farþegar myndu taka eftir því ef ein ólífa myndi hverfa þar sem flestir skildu þær eftir.

Crandall lét gera könnun á ólífuáti meðal farþega sem leiddi í ljós að um 72 prósent farþega voru lítið gefnir fyrir ólífur og aðeins 28 prósent átu þær.

Með þessari fækkun náði American Airlines að spara sér 40 þúsund bandaríkjadali á ári sem myndi samsvara 5 milljónum króna í dag en félagið ákvað að lokum að hætta með allar ólífur sem jók sparnaðinn upp í 500.000 bandaríkjadali á ári.

Samtök ólífuræktenda komust fljótlega að þessu og hótuðu þeir að sniðganga American Airlines en félagið þurfti á ólífum að halda til að bera fram Martini-drykkinn og ákvað félagið þá að panta ólífur aftur í salatið eftir nokkur ár.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga