flugfréttir

Icelandair stærra en SAS og Norwegian á Ameríkumarkaði

- Fleiri áfangastaðir og brottfarir en hjá SAS og Norwegian til samans

18. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 11:26

Icelandair flýgur til 13 áfangastaða til Norður-Ameríku yfir sumartímann en SAS og Norwegian til 5 áfangastaða hvor

Icelandair er orðið stærra en SAS og Norwegian til samans á Ameríkumarkaði er kemur að fjölda flugferða í viku og fjölda áfangastaða í sumar en með tilkomu þeirra umsvifa sem hafa orðið á leiðarkerfi félagsins er samkeppnin orðin erfið fyrir SAS.

Hægt er að fljúga frá 8 flugvöllum á Norðurlöndunum með Icelandair til Keflavíkur og þaðan áfram til 14 áfangastaða í Bandaríkjunum og í Kanada.

Scandinavian Airlines (SAS) hefur lengi talið sig vera það flugfélag sem er fremst í farabroddi þeirra sem fljúga milli Norðurlandanna og Ameríku með sætaframboð fyrir 27.748 farþega á viku en félagið þarf að setja í minni pokann fyrir Icelandair sem býður upp á yfir 36 þúsund sæti til Ameríku á viku.

Taflan sýnir vikulegar tölur hjá flugfélögunum þremur í sumar

Danskur fjölmiðill ber saman fjölda áfangastaða, flugferða og sætaframboð hjá flugfélögunum þremur og kemur í ljós að Icelandair flýgur fleiri ferðir fram og til baka til Norður-Ameríku en SAS og Norwegian til samans.

Icelandair mun í sumar fljúga til 13 áfangastaða í Ameríku og bjóða upp á 101 flugferð á viku frá Keflavík en Boston er vinsælasti áfangastaður félagsins en þangað er flogið þrisvar á dag en New York kemur í 2. sæti með tveimur flugferðum á JFK og einu daglegu flugi á Newark (EWR).

Norwegian flýgur sjaldnast til Norður-Ameríku af skandinavísku flugfélögunum en félagið hefur aðeins verið í tæp 3 ár á Ameríkumarkaðnum með flugi til Fort Lauderdale, Los Angeles, New York, Oakland og Orlando.

Icelandair flýgur einnig til Orlando frá september til júní en þann 20. maí hefst flug til Portland sem verður fjórtándi áfangastaður Icelandair og Chicago verður svo fimmtándi áfangastaður Icelandair en flug þangað hefst í mars 2016.

Norwegian mun bæta við sig Las Vegas í október í haust en enginn nýr áfangastaður er í kortunum hjá SAS í Norður-Ameríku sem flýgur í dag til Chicago, Newark, San Francisco og til Washington.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga