flugfréttir
FAA gefur út vottun fyrir Split Scimitar vænglingum á Boeing Business Jet
Fyrirtækið Aviation Partners Inc. hefur fengið vottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) fyrir tvískiptum vænglingum (Split Scimitar Winglets) á Boeing Business Jet viðskiptavélunum og eru vænglingarnir núna staðalbúnaður á vélunum.
Vottunin kemur í kjölfar fjögurra mánaða flugprófanna með Split Scimitar Winglets á BBJ vélunum en vonast er til að vottun komi á næstunni frá flugmálayfirvöldum í Evrópu (EASA).
Vænglingarnir minnka drag vélanna, auka burðargetu og flugþol og auka sparneytnina um 2% til viðbótar umfram þá hefðbundnu vænglinga sem Boeing Business Jet vélarnar hafa haft.
Vottunin fyrir Split Scimitar Winglets nær yfir BBJ vélar af gerðinni Boeing 737-700, -800 og -900 en Joe Clarke, framkvæmdarstjóri API, sér fram á að markaður sé fyrir 5.000 eintök af vænglingunum fyrir Boeing Business Jet vélarnar.
Að koma fyrir Split Scimitar Winglets vænglingum á BBJ vélar, sem hafa þá ekki nú þegar til staðar, kostar um 74 milljónir króna og tekur ferlið um fjóra daga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.