flugfréttir
Þurfti að greiða 12.000 krónur til að fá að sitja við hlið 4 ára dóttur sinnar
Frank Strong ásamt dóttur sinni um borð í vél Delta eftir að þau fengu að sitja saman gegn greiðslu
Maður einn í Bandaríkjunum segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa þurft að greiða 12.000 krónur aukalega til þess að fá að sitja við hlið fjögurra ára dóttur sinnar um borð í flugi hjá Delta Air Lines.
Frank Strong hafði bókað flug fyrir sig og dóttur sína frá Raleigh í Norður-Karólínu til Montgomery í Alabama til að fara með dótturina í heimsókn til ömmur sinnar.
Þegar Frank bókaði flugið fann hann hvergi nein tvö sæti sem voru hlið við hlið en hann hafði sett inn aldur dóttur sinnar áður en kom að því að velja sæti.
Frank sá að lítið var hægt að gera nema leysa málið við innritun þegar kæmi að því að fara í flugið en þá kom í ljós að það væri happ og glapp hvort að það væru laus sæti hlið við hlið um borð en ef hann vildi vera alveg öruggur þyrfti hann að greiða 88 bandaríkjadali.
Eftir að hafa greitt aukagjaldið varð Frank enn reiðari þegar þau fóru um borð í vélina og sáu að nóg var að lausum sætum hlið við hlið.
"Það er erfitt fyrir foreldra að hafa auga með barninu sínu þegar það er í ellefu sætaraða fjarlægð með sætisbletaljósið glóandi allt flugið", segir Frank sem skorar á Delta að leyfa foreldrum sínum að fljúga við hlið barna sinna án þess að þurfa greiða aukalega fyrir það.
Talsmaður Delta segir að félagið sé að skoða málið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.