flugfréttir

JetBlue gat ekki séð fram á veikindi Osbon sem lögsækir nú félagið

21. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:52

Osbon hafði flogið fyrir jetBlue síðan árið 2000 og segja samstarfsmenn hans hann vera toppnáunga, frábæran flugmann og mikinn gæðadreng.

Bandaríska flugfélagið jetBlue segir að það hafi ekki verið nokkur leið fyrir félagið að geta séð fram á að fyrrverandi flugmaður félagsins, Clayton Osbon, hafi verið tæpur á geði er hann missti stjórn á hegðun sinni sem flugstjóri á Airbus A320 vél sem hann flaug frá New York til Las Vegas árið 2012.

Aðstoðarflugmaður vélarinnar lenti henni á miðri leið í Amarillo í Texas þar sem Osbon var borinn á börum frá borði en Osbon segir í dag að hann hafði varað jetBlue við veikindum sínum en félagið hafi ekki tekið mark á honum þá og fer hann núna fram á 1,9 milljarða króna í skaðabætur.

Lögfræðingar hjá jetBlue segja að það sé ekkert sem félagið hefði getað gert til að koma í veg fyrir atvikið og fóru þeir fram á það í dag við réttarhöld á Manhattan að málið yrði fellt niður.

Osbon hóf skyndilega að láta illum látum og hljóp hann um farþegarýmið og hrópaði áróður um trúarbrögð og hryðjuverk.

Osbon segir að hann þjáist af geðrænum kvilla sem stafi af veikindum í heila hans sem getur skotið upp kollinum og segir hann að jetBlue hefði geta komið í veg fyrir það þar sem hann missti af undirbúningi fyrir flugið eftir að hann varð skyndilega vankaður og ringlaður.

Fyrir utan hversu vandræðalegt atvikið var segir Osborn að þar að auki hafi mannorð hans skaðast eftir umfjöllunina í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum og þar að auki hafi hann misst starfið sitt hjá jetBlue.

JetBlue ætlar að mótmæla formlega kröfu Osborn á þeim forsendum að þær standist ekki við nein rök en búið er að ræða möguleika á sáttatillögu en ekki er vitað hvort að hún muni ganga í gegn þar sem dómari gæti vísað málinu frá.

Osbon lagði formlega inn kæru á hendur jetBlue þremur dögum eftir að Airbus A320 vél Germanwings fórst í frönsku Ölpunum eftir að flugmaður vélarinnar grandaði henni vísvitandi með því að læsa sig inni í stjórnklefanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga