flugfréttir
Breiðari gluggi kynntur fyrir Boeing Business Jet einkaþotur
- SkyView Window glugginn er einn og hálfur meter á lengd
SkyView Windom er framleiddur af GKN Aviation í samstarfi við Fokker í Hollandi
Mun stærri gluggi en farþegar eiga að venjast er nú til sýnis á EBACE einkaþotusýningunni sem lýkur í dag í Genf í Sviss.
Glugginn, sem nefnist SkyView Window, er sérstaklega hannaður fyrir Boeing Business Jet einkaþoturnar en það er GKN Aerospace sem framleiðir gluggann í samstarfi við Fokker í Hollandi sem sér um að setja gluggann í BBJ vélarnar frá Boeing.
Hægt er að koma fyrir allt að fjórum slíkum gluggum á hverri Boeing Business Jet vél en glugginn er einn og hálfur meter á lengt og 50 sentimetrar á hæð og býðst því glæsilegt útsýni fyrir farþega sem geta barið landslag skýjanna augum mun betur en tíðkast.
Glugginn er húðaður með sérstakri Crystal Vue II áferð en hann er framleiddur af GKN í Luton á Englandi en fyrstu gluggarnir verða afhentir í fyrstu vélina í desember og tilbúnir í uppsetningu snemma á næsta ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.