flugfréttir

Norðurljósavél Icelandair vakti lukku meðal margra ljósmyndara í Portland

22. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 06:47

Fyrsta flug Icelandair frá Portland til Keflavíkur var flogið þann 20. maí, daginn eftir fyrsta flugið frá Keflavík þann 19. maí

Það voru margir ljósmyndarar sem náðu norðurljósavélinni „Hekla Aurora“ er hún kom inn til lendingar til flugvallarins í Portlands eftir fyrsta flug Icelandair til borgarinnar sem er fjórtándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku.

Flugtíminn í fyrstu flugferðinni var 7 klukkustundir og 19 mínútur og lá flugleiðin til norðvestur frá Keflavík yfir Kangerlussuaq, yfir Baffinsland, Southampton-eyju í Hudson-flóa, Saskatchewan, Calgary og Washington-fylki og lenti vélin 35 mínútum á undan áætlun en flugleiðin var tæpir 6.100 kílómetrar

Hér að neðan gefur að líta myndir og myndbönd af Instagram og YouTube sem tekin voru er vélin lenti og frá fyrstu brottförinni daginn eftir.

Flugleiðin til Portland er yfir 6.000 kílómetrar

Margir flugvélaljósmyndarar lýstu yfir ánægju sinni á Instargam yfir því að hafa náð myndum af vélinni og það í þessum fallegu litum en einnig voru nokkrir sem skrifuðu ummæli og lýstu yfir vonbrigðum að hafa misst af því að ná myndum af vélinni.

"You dont know how happy I was they used this beauty for the inaugural departure! Haha! I bet we all were, segir ljósmyndarinn @thekeizeraviator.

Annað flug Icelandair til Portland var farið í gær en það var þó ekki Hekla Aurora sem flaug það flug þar sem hún hefur verið notið til ýmissa borga í tengslum við kynninguna #mystopover en eftir Portland-flugið fór hún til Oslóar og til Washington í gær.

Myndir af Instagram:















Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga