flugfréttir
Flugfélög í S-Kóreu fallast á að nota ekki flugvélar sem hafa náð 20 ára aldri
Meðalaldur flugvéla í Suður-Kóreu er 9,8 ár
Átta flugfélög í Suður-Kóreu hafa skrifað undir samkomulag við flugmálayfirvöld í landinu um að gangast við aldurstakmarki á flugflota með því markmiði að stuðla að bættara öryggi í fluginu.
Sjö flugfélög í Suður-Kóreu hafa 264 farþegaþotur í sínum flota en aðeins 14 þeirra hafa náð 20 ára aldri og meðal þeirra eru tvær fraktvélar í flota Air Incheon.
Tiltölulega fáar vélar í Suður-Kóreu hafa náð 20 ára aldri samanborið við bandarísk flugfélög á borð við Delta Air Lines sem hefur 234 vélar sem eru komnar yfir tvítugt og American Airlines sem hefur 233 vélar sem voru smíðaðar fyrir árið 1995.
Meðalaldur flugvéla í Suður-Kóreu er 9,8 ár og meðalaldur tveggja stærstu flugfélaganna, Asiana Airlines og Korean Air er 8,4 ár.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.