flugfréttir
Flugmenn settu óvart inn kóða sem tilkynnti flugrán
Boeing 737-800 vél Jet2.com á flugvellinum á Mallorca
Flugmenn á Boeing 737-800 vél frá Jet2.com slóu óvart inn rangan kóða sem gaf til kynna að vélinni hefði verið rænt.
Vélin var á leiðinni frá East Miðland til Mallorca sl. mánudag í 31.000 fetum og var hún að byrja að lækka flugið þegar vélin hafði sent út "squawk-kóðann" 7500 sem þýðir að flugvéli hefur verið rænt.
Viðbúnaður var settur í gang en samkvæmt reglum þá fara flugumferðarstjórar fram á staðfestingu á kóðanum 7500. Ef ekkert svar berst er því tekið sem að flugrán hafi átt sér stað og eru orrustuþotur þá sendar af stað.
Sextán mínútum síðar lenti vélin á Mallorca en henni var beint á afvikið stæði þar sem lögregla og sérsveit umkringdi vélina en aðeins lögreglan fór um borð.
Í ljós kom að ekkert saknæmt virtist hafa komið upp og var aðeins um að ræða misskilning þar sem kóðinn hafði verið settur inn fyrir mistök.
Vélin fór hinsvegar ekki strax í loftið til baka þar sem hún var í 6 klukkustundir á flugvellinum fyrir næstu brottför og var þriggja tíma seinkun á fluginu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.