flugfréttir

Hvassahraun talinn besti staðurinn fyrir nýjan flugvöll

25. júní 2015

|

Frétt skrifuð kl. 16:41

Þeir staðir sem komu til greina sem Rögnunefndin hefur verið með til skoðunar fyrir nýjan flugvöll fyrir innanlandsflugið

Hvassahraun er talið vera hentugasti kosturinn fyrir nýjan flugvöll fyrir Reykjavík samkvæmt skýrslu sem hin svokallaða Rögnunefnd hefur skilað inn með því mati sem gert hefur verið.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Hvassahraun henti best upp á frekari þróun í stað Reykjavíkurflugvallar en markmið nefndarinnar var að finna staðsetningu fyrir nýjan flugvöll fyrir innanlandsflugið annars vegar og einnig var gerð úttekt á því hvaða staður myndi koma best út fyrir möguleika til framtíðar upp á stækkun að gera og þau áhrif sem það myndi hafa á íbúa og atvinnusköpun.

Talið er að Hvassahraun sé ákjósanlegasti staðurinn fyrir nýjan flugvöll upp á veðurfar að gera og með tilliti til umhverfismála og þess rýmis sem er á svæðinu en hafa ber í huga þá nálægð sem er við Keflavíkurflugvöll upp á aðflug að gera auk annarra þátta.

Þá er Hvassahraun talinn vera ódýrasti kosturinn en fram kemur í skýrslunni að framkvæmdirnar muni nema um 25 milljörðum króna en breytingar á Reykjavíkurflugvelli gæti numið allt frá 18 til 32 milljörðum sem fer eftir því á hvaða hátt flugvellinum yrði breytt.

Nefndin telur ekki ákjósanlegt að nýta Reykjavíkurflugvöll með breytingum

Þær staðsetningar sem komu helst til greina fyrir utan Hvassahraun var Bessastaðanes, Hólmsheiði og Löngusker en einnig komu til greina aðrar útfærslur og breytingar á flugbrautum á Reykjavíkurflugvelli.

Dýrustu flugvallarframkvæmdirnar eru taldar vera Löngusker þar sem þyrfti að fara út í landfyllingar og flugvöllur á Hólmsheiði er talinn versti kosturinn vegna nálægða við fjöll auk þess sem skyggni og skýjahæð myndi skerða notkunarmöguleika um allt að 3% á ári.

Þá kemur fram að breytingar á Reykjavíkurflugvelli myndi raska lífríki í sjónum auk þess sem breyttur flugvöllur í Vatnsmýrinni myndi valda hljóðmengun fyrir íbúa.

Miklar deilur hafa verið um flugvöllinn í Vatnsmýrinni sl. mánuði og framtíð hans en Rögnunefndin var skipuð í október árið 2013 en upphaflega átti nefndin að skila skýrslunni inn í desember 2014 en frestur var fenginn til að skila henni í júní.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga