flugfréttir
Myndband: Dróni sem skall á þotu í flugtaki reyndist vera tæknibrella
- Tæknibrellumeistari átti ekki von á því að myndbandið færi svona langt
Myndbandið sýnir hvar dróni rekst á vænginn í flugtakinu og brýtur upp úr vænglingnum
Myndband sem sýnir dróna rekast á vængenda á farþegaþotu í flugtaki vakti þónokkra athygli á dögunum í fjölmiðlum vestanhafs.
Myndbandið er tekið út um glugga á vél Southwest Airlines sem er í flugtaki í New York en skyndilega birtist dróni sem rekst á vænginn og brýtur upp úr vænglingnum.
Það var vefsíðan Liveleak.com sem birti myndbandið af atvikinu sem átti sér aldrei stað en hér er á ferðinni brellur sem tæknibrellumeistarinn Bruce Branit bjó til að gamni sínu.
Branit segir að hann hafi gert myndbandið í frítíma sínum og sett á YouTube vefsíðu fyrirtækisins sem hann starfar hjá en hann segist ekki hafa hugmynd um hvers vegna það náði svona langt en nokkrir fjölmiðlar létu glepjast og birti fréttina án þess að vita að hér væri fölsun á ferðinni.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.