flugfréttir

FAA ætlar að sekta National Air Cargo vegna slyssins í Afghanistan

29. júní 2015

|

Frétt skrifuð kl. 10:38

Boeing 747 vél National Air Cargo

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa farið fram á að National Air Cargo í Orlando í Flórída verði sektað um 10 milljónir króna í kjölfar flugslyssins er Boeing 747 vél frá félaginu fórst skömmu eftir flugtak frá Bagram-flugvellinum í Afghanistan þann 29. ágúst árið 2013.

FAA segir að National Air Cargo hafi ekki framfylgt öryggisreglum er vélin var lestuð af frakt og að frágangur hafi verið ófullnægjandi á mjög þungri frakt sem var um borð í vélinni en slysið átti sér stað með þeim hætti að festingar fyrir stóra hertrukka losnuðu í flugtaki með þeim afleiðingum að þeir færðust til.

Myndband sem náðist af slysinu fór víða um internetið sem sýndi á óhugnarlegan hátt er vélin hætti að klifra í flugtakinu og skall til jarðar.

Slysið átti sér stað þann 29. ágúst árið 2013

FAA segir að National Air Cargo hafi ekki farið eftir þeim reglugerðum sem flugmálayfirvöld fara fram á varðandi öryggi í fraktflugi með þunga frakt og hafi hertrukkarnir ekki verið nægilega vel festir niður en hver og einn vó yfir 20 tonn. Sjö manna áhöfn var um borð í vélinni og komst enginn lífs af í slysinu.

Þá segir FAA að National Air Cargo hafi flogið a.m.k. sjö aðrar flugferðir með sambærilega hertrukka sem einnig voru ekki nægilega festir í fraktrýminu en í flugtaki getur ófullnægjandi frágangur á festingum valdið því að fraktin færist til í flugtaki og komið af stað ójafnvægi á þyngdardreyfingu.

National Air Cargo hefur beðið um fund með FAA vegna málsins en NTSB vinnur enn að rannsókn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga