flugfréttir

Bresk flugfélög vilja setja flugdólga í eilífðar flugbann

29. júní 2015

|

Frétt skrifuð kl. 20:26

Sumir flugdólgar hafa byrjað snemma að sumbla fyrir flugið og margir vel áður en mætt er út á flugvöll

Breska lágfargjaldafélagið Jet2.com vill að flugdólgar verði settir í bann til lífstíðar hjá flugfélögunum en félagið segir að þeir sem missa stjórn á hegðun sinni vegna áfengisneyslu séu að skemma fyrir þeim farþegum sem vilja fá sér áfengi um borð.

Ástandið er orðið mjög slæmt og hafa Jet2.com og önnur bresk flugfélög á borð við Monarch tekið höndum saman í stríðinu við flugdólgslæti sem oftast eiga rætur sínar að rekja út frá áfengisneyslu hjá farþegum.

"Við erum flugfélag sem fljúgum með fjölskyldur til sólarlanda og milljónir farþega sem hafa kosið okkur til að koma þeim í verðskuldað sumarfrí. Ekki undir neinum kringumstæðum viljum við að örfáir einstaklingar geti eyðilagt fríið fyrir öllum hinum", segir Phil Ward hjá Jet2.com.

Samgöngustofa Bretlands og samtök breskra flugvalla hafa einnig tekið saman höndum um að finna hentugustu leiðina til að takast á við flugdólga í kjölfar þeirra gagna sem bresk flugmálayfirvöld birtu nýlega sem sýna að flugdólgslæti hafa þrefaldast á seinustu þremur árum.

Jet2.com hefur sent bréf til samgönguráðuneytis Bretlands þar sem ríkisstjórnin er hvött til þess að setja á nýjar reglugerðir til að hjálpa flugfélögum við að sporna við flugdólgum en ein hugmyndin er að setja flugdólga á flugbannlista ævilangt







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga