flugfréttir

Solar Impulse heldur hnattfluginu áfram eftir 30 daga viðgerð í Japan

- Hættulegasti hluti leiðarinnar framundan til Hawaii

30. júní 2015

|

Frétt skrifuð kl. 08:02

Solar Impulse 2 hefur sig á loft í Nagoya eftir 30 daga óvænta viðdvöl í Japan

Sólknúna flýgildið Solar Impulse 2 hélt áfram för sinni í hnattflug kringum jörðina í gær en flýgildið hefur verið kyrrsett sl. fjórar vikur í Nagoya í Japan vegna skemmda.

Seinasti leggur Solar Impulse 2 var frá Nanjing í Kína og var áætlað að fljúga beint til Hawaii en þann 1. júní var ákveðið að lenda í Nagoya í Japan þar sem ekki var talið örugt að halda áfram yfir Kyrrahafið vegna veðurs.

Lendingin í Nagoya gekk þó vél en vindhviða feykti flýgildinu til skömmu síðar með þeim afleiðingum að annar vængurinn skemmdist.

Andre Borschberg í stjórnklefanum á Solar Impulse 2

Það var Andre Borschberg sem flaug vélinni er hún fór í loftið í gærkvöldi kl. 18:00 að íslenskum tíma en gerð var tilraun til þess að hefja flugið til Hawaii fyrir 5 dögum síðan en hætt var við það vegna veðurs.

Leiðin frá Nagoya til Hawaii er 7.900 kílómetrar og er talið að flugið muni taka 5 daga og fimm nætur og er þetta áttundi leggurinn frá því að hnattflugið hófst í mars í Abu Dhabi og jafnframt sá hættulegasti þar sem hvergi er hægt að lenda á leiðinni.

Borschberg segir að hann muni halda sér í formi á leiðinni með því að stunda jóga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga