flugfréttir
Tugi látnir eftir flugslys í Indónesíu í morgun
- Hercules herflutningavél fórst í íbúðarhverfi skömmu eftir flugtak
Flugmaður vélarinnar fór fram á að snúa við skömmu áður en vélin fórst vegna bilunar
Tugi manns létu lífið í flugslysi í morgun er herflutningavél frá indónesíska flughernum fórst í Indónesíu í morgun skömmu eftir flugtak frá Halim Perdanakusuma flugvellinum á Súmötru.
Vélin, sem var af gerðinni C-130 Hercules, var nýfarin í loftið frá flugvellinum í borginni Medan á Súmötru þegar hún hrapaði ofan á byggingar og hótel í íbúðarhverfi og er óttast um að enginn hafi komið lífs af.
Vélin var á leið til herflugvallarins í Tanjung Pinang og hafði flugstjóri vélarinnar farið fram á að snúa við vegna bilunar sem hafði komið upp en sjónarvottar segja að vélin hafði hringsólað nokkrum sinnum yfir svæðinu áður en hún flaug utan í hótelið.
Svartan reyk lagði frá slysstaðnum og átti björgunarlið erfitt að komast að þar sem fjöldi fólks safnaðist saman á svæðinu.
113 manns voru um borð en ekki er vitað hversu margir voru í vélinni er hún fórst þar sem hún hafði stoppað við á tveimur stöðum áður.
Tölur um fjölda látinna eru á reiki þar sem enn er verið að finna fleiri lík á svæðinu en einn aðili á vegum hersins segir að þegar sé búið að ná 55 líkum af slysstaðnum.
Ekki er vitað hver orsök slyssins er en atvikið vekur enn og aftur spurningar um öryggismál í fluginu í Indónesíu en sl. 10 ára hafa tíu herflugvélar farist hjá indónesíska flughernum en einnig er flugslysatíðni í farþegaflugi í landinu há m.a.v. önnur lönd.
Vekur upp enn frekar spurningar varðandi öryggi í fluginu í Indónesíu
Slysið gæti sett þrýsting á indónesísk stjórnvöld til að endurnýja flugflotann innan hersins en vélin sem fórst var hálfrar aldar gömul og er þetta fjórða C-130 Hercules vélin hjá hernum sem ferst.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.